Aðalvalmynd

Könnun

Halló?

Auglýsing

Jeyjj! loksins!

24. nóvember 2009 klukkan 17:41
Er alltof löt við að blogga, Annars er allt gott að frétta af mér, það gengur voða fínt. Er byrjuð í nýjum skóla semsagt þýskunámi og er í ótrúlega fyndnum bekk, þetta er fólk frá öllum löndum og allir frekar sérstakir, En það er ekkert leiðinlegt, gengur bara fínt.
Á  þarþarseinustu helgi fór ég í Sirkus, „Sirkus Charles Knee"  ótrúlega flott sýning bara ótrúlegt hvað er hægt að kenna þessum blessuðum dýrum að gera og þessir skrítnu hæfileikar fólks. Þessa sömu helgi fór ég í sundlaug hérna sem heitir NAUTIMO „tropical swimmingpool" , rosa flott laug með 2 rennibrautum sona sundlaugarhring með miklum straumi, þannig að þú ferð bara í hringi þegar þú ferð ofaní laugina,svo er Krakkaland bara gosbrunnar og litlar rennibrautir og blahh.. svo eru 3 aðrar laugar,Helgina eftir það (semsagt þarseinustuhelgi) Keyrðum við til  Cuxhaven og byrjuðum á því að fara í sona lítinn Park með dýrum og leiktækjum ossona og röltum svo aðeins á ströndinni og enduðum á því að kíkja um borð til Jóa Frænda :) Rosa skemmtileg ferð og allir heillaðir af skipinu!, svo fékk maður náttúrulega fisk frá pabba  og mömmu sem er allsekki slæmt :)Og á sunnudeginum var ég ein með alla krakkana frá morgni til kvölds! En bara gaman ég ákvað að búa til trölladeig og leira eitthvað skemmtilegt og það tók um hálfann daginn svo það var bara fínt.
Og þessa Helgi átti ég náttúrulega afmæli, það var voða gaman vaknaði um morguninn og fékk köku og rosa flott skreytt allt í blöðrum og happy birthday í loftinu ;) frekar fyndið, fékk svo þessa svakalegu afmælisgjöf frá fjölskyldunni minni, semsagt Mánaðarkort í ræktina sem inniheldur ótakmarkaða tíma í ljósabekki og kemst á alla kurse(kann ekki íslenska orðið yfir það t.d. Aerobic)Og svo nottlega ótakmarkan tíma í ræktinni, og er búin að vera rosa dugleg síðan á afmælinu og er búin að fara alla daga síðan,og ekki nóg með það fékk ég líka Gelneglur eða að fara á snyrtistofu og fá mér neglur, og um kvöldið var svo farið í Keilu, voða gaman!. Síðan við fengum fiskinn þá er búinn að vera ansi mikið borðað af fiski hér á þessum bæ og krakkarnir farnir að kvarta yfir alltof miklu fiskáti, mér fínnst fínt að fá fisk 2-3 viku, Eldaði svo þennan fína humar í dag og fékk auðvitað Belgískt Súkkulaði í eftirrét, þar sem ég bý nú hjá belgum, þetta er besta súkkulaði bara í heiminum.
Svo á föstudaginn 5 desember á Leon afmæli og þá er huguð ferð til Berlínar, það er að segja ef ég nenni með, langar að sjá Berlín. Svo er Nottlega kökubakstur líka ofarlega á lista. Á víst að gera köngulóar köku! Takk fyrir pent og eina sem fer á leiksskólann og eina í afmælið sjálft :)
Ég má Til með að segja ykkur frá Föstudeginum 13 hérna í þýskalandi, skoo allveg ekta föstudagurinn 13. Ég vaknaði og fór með strákana á leiksskólan þá var yngri drengurinn sendur heim,svo ég fór heim heim! og nei bilaði þá ekki hjólið og petalinn datt af svo ég þurfti að labba í hálftíma með hjólið og drenginn heim, og þurfti að vera komin kl 9 heim vegna þess að þrifkonurnar voru að koma, rétt náði á tíma. Svo ætlaði ég að fá mér að borða og fór með matinn minn upp og henti appelsínusafanum í rúmið, gleymdist þá ekki að loka tappanum og rúmið mitt allt í appelsínusafa. Svo um kvöldið var ég að ganga frá eftir matinn þá tókst mér að brjóta 3 glös, svo eftir að ég braut glösin 3 þið vitið að á uppþvottavélum eru sona körfur uppi og niðri til að setja dótið í og ég tók neðri körfuna út leit í burt í smá stund, og var þá ekki karfann byrjuð að fljúga niður full af leirtaui! og ég skutlaði mér og rétt náði körfunni! Leiðinlegur dagur en hlæ af þessu eftirá.
Held þetta sé bara komið eins og er :)
Heyrumst
Hafdís Sem elskar Belgískt súkkulaði.!!

Ég borðaði harðfisk og mandarínu í kvöldmatinn

27. október 2009 klukkan 20:53
Jájájáahá, dagarnir mínir eru sona yfirhöfuð alltaf svipaðir, Alla seinustu viku þurfti ég að skríða á labbir 7 á morgnanna henda drengjunum 2 í leiksskólann og svo bíða til 12 fara með juliette í heilsdagsskólann,  bíða þangað til næsta hobbý byrjar  elda matinn og svo on and on..!  Spennandi ekki satt?
Þreif svo ALLT húsið einn daginn, þar sem þrifkonurnar komust ekki! I dont blame them.
Helgin fór í það að vera lasin, vaknaði svona líka hress með 40 stiga hita.. og kíkti aðeins uppá sjúkrahús lét taka blóðprufur og reyndist það ekki vera svínaflensan, heldur bara einhver smá sýking í lungunum, en það er allt að koma. Fínt að búa svona hjá lækni, kemst strax að uppá spítala þar sem hún gerði allt sjálf!.
Þessi vika eða þessir 2 dagar sem eru búnir af henni eru búnir að vera fínir er enþá að jafna mig af flensunni, búin að rúnta aðeins um með inge kíkja í pínu búðir ossona, fór svo í dag og skráði mig í meira þýskunám þurfti að taka próf og það gekk bara fínt, og ég byrja 16 nóv í því, þarf svo að fara að finna mér eitthvað meir að gera hérna sona uppá funnið!, þar sem vinkonur mínar hafa yfirgefið mig og farið til azerbadjan og spánar!.
Ekki meira í bili sjáumst (K)
Dísa Skvísa!

17. október 2009 klukkan 12:38
Hæhæ
Jæja þar sem mér var sagt það á íslandi að fólk væri actually að nenna að lesa bloggin mín, þá er hérna eitt stykki.
Íslandsferðin mín var mjög fín, alltaf gott að komast heim þó svo að tilefnið hafi ekki verið það skemmtilegasta.
Íslendingar tóku svona líka rosa vel á móti mér, þar sem ég var tekin í tollinum þegar ég kom heim, semsagt fíkniefnahundurinn þefaði einhverja lykt af mér sem ég veit ekki nákvæmlega hvaðan kom. En það eru margar ástæður, t.d. ég sat á gólfinu í lestinni, ég fór í taxa í 2 tíma og sat svo við hliðina á frekar sjabbí gaurum í flugvélinni, það þarf ekki að vera nema þú komist rétt nálægt lyktinni og hún er föst á þér. En eftir klukkutíma í tollinum var mér loksins hleypt heim, (það var samt ekkert farið að leita uppí rassgatinu á mér ef þið eruð að hugsa það!) En það er mikið búið að hlægja af þessu. 
En mér var þó farið að leiðast í endann og ákvað að skella mér bara til Danmerkur til Halldóru frænku og Leifa og Jóhannesar Jóns, það var mjög gaman að koma til þeirra, við kíktum aðeins niðrí bæ og fórum svo yfir helgina til Díönu vinkonu halldóru,. Keyrðum svo yfir til Þýskalands á Sunnudagsmorgun.  En á sunnudagskvöld þurfti Jói litli frændi að fara í smá aðgerð, svo ég fór til Lalla frænd og gisti þar eina nótt og fékk þetta líka fína Hangikjöt ;),  var þar svo allan mánudaginn. Og á þriðjudaginn fór ég og keypti mér þennan líka fína Gítar! Er mjög sátt með hann,. Og á miðvikudaginn fór ég heim til þýskalands, ferðin byrjaði á því að villast ég! SNILLINGURINN tók vitlausa lest og viltist svo ferðin mín breyttist, en ég fékk sem betur fer aðra ferð aftur að kostnaðarlausu! Bara helmingi flókknari og þurfti að stoppa 9 sinnum og skipta um lest! En mér tókst þetta, það er fyrir mestu.
Mjög gott að koma til baka, ég kíkti á Cathelin og krakkana í fyrrakvöld og við fengum okkur nokkra bjóra og kíktum svo á Diskó. Er búin að vera með krakkana ein síðustu 2 daga þar sem það er enginn skóli og við erum t.d. búin að vera að skera út grasker þar sem það er hallowen, ekki það skemmtilegasta í heimi en mjö gaman eftirá :)
Kveðja
Hafdís Dröfn
Væri mjög gaman að fá komment :)

Guten Tag!

30. ágúst 2009 klukkan 18:34
 

Ooog hún ákvað að blogga!
Veit ekki hversu lengi þessi blogg dugnaður endist en ég reyni mitt besta að minnsta kosti.
Það er búið að vera margt um mannin á þessu heimili síðan ég kom út alltaf fullt af gestum fyrst var það systir koens maðurinn hennar og dóttir og svo komu foreldrar Inge og núna í vikuni voru 2 litlar frænkur í heimsókn svo það voru hvorki meira né minna en 6 börn sem þurfti að hugsa um. En það gekk eins og í sögu og reynt að hafa stansaust prógramm alla vikuna fyrir þau.
Við byrjuðum á því að fara með krakkana í Oceanis safn hérna það er krakkasafn um sjóinn og dýrin í sjónum, svo á fimtudaginn fórum við í sund! Allt öðruvísi laugar hér heldur en á íslandi þær eru ískaldar og ég mæli ekki með þeim hérna!. Ég fór einu sinni ofan í og það í 10 mínútur eða svo gat ekki meir þó það hafi verið 25 stiga hiti úti! Og á föstudaginn fórum við með krakkana í minigolf og amman og afinn komu með það er frekar erfitt að halda sumum við efnið og allir út um allan völlinn mjög fyndið. Og í gær fórum við á svokallað sjóræningjasafn mjög spennandi og borðuðum svo nesti í einum Garði hérna en það er mikið borðað á þessum bænum og allir voða svangir enþá svo ég fór útí búð og keypti pulsur. Svo seinnipartinn fórum við Inge útí búð að versla í matinn og eins og margir vita eru þjóðverjar mjög akkurat og allt í röð og reglu og allir á tíma, og í búðinni eru kerrur í bláum grænum og rauðum litum og þær eru allar flokkaðar úti og við Inge hlógum svo að þessu og sögðum báðar þetta er svo típískir þjóðverjar og við ákváðum að vera ótrúlega fyndnar og hlógum eins og 5 ára krakkar og settum bláu kerruna okkar hjá þessum rauðu en nei! Þá passar ekki kerran í þessa rauðu svo þú ert þvingaður til þess að vera vel skipulagður hérna.! En okkur fannst þetta voða fyndið og fólk horfði á okkur eins og við værum allveg kabútt! Svo var ákveðið að baka pizzu eftir búðarferðina og allir fengu að hjálpa til og gera sína eigin pizzu og ég get svo svarið það að eldhúsið var eitt hveitibað og allir útí hveiti, bara eins og í bíómynd! En pizzurnar heppnuðust vel og allir saddir og ánægðir með daginn. Í dag var hinsvegar letidagur ég svaf út og horfði á mynd meðan þau fóru út og hafði það bara verulega huggulegt! Við matarborðið fékk ég hinsvegar skemmtilega þýskukennslu og þau fengu skemmtilega íslenskukennslu og það var hlegið og reynt að segja R en það tókst ekki!
Já á morgunn ætla ég að kaupa mér miða til Danmerkur svo ég geti nú hitt þessa blessuðu fjölskyldu eina helgi ;) held það verði bara mjög gamann og hlakka mikið til :D Núna er skólinn búinn svo ég fer að byrja að (vinna) eða vera með krakkana yfir daginn og fara með þau í skólann og sækja og elda fyrir þau, Inge byrjar að vinna núna um miðjan september svo það verður mikið að gera á næstunni.
Já ég ákvað að breyta þessum blessaða bakgrunni fyrir gamla fólkið á íslandi! Þar sem þau kvarta yfir því að geta ekki lesið blogginn mín.
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili enda orðin ansi langur pistill, takk kærlega fyrir kommentin og kveðjurnar allir!! gaman að heyra að þið séuð að fylgjast með :D
Hafdís Dröfn Sigurðardóttir

Moin Moin!!

25. ágúst 2009 klukkan 14:28
Alltaf nóg að gera á þessum bænum, í seinustu viku var skroppið í keilu með skólanum spiluðum nokkra leiki og ég tapaði að ég held í öllum leikjunum! Svo ég þurfti að splæsa snakki á mitt lið, sá nú ekkert eftir því sossum. Bara gaman að þessu, svo á föstudaginn þá var ákveðið að skella sér á Dance club! Fun/lollipopp við hittumst heima hjá Natalia ásamt fleira fólki og fórum svo niðrí bæ og þetta var bara gaman :) skemmti mér konunglega þetta kvöld :). Og á laugardaginn þá vaknaði ég snemma og var bara hérna heima með fjölskyldunni þangað til kl 1 þá fór ég heim til Catheliin og þar var chichi að elda kínamat fyrir okkur, og ég held bara að ég hafi alldrei smakkað jafn vondan mat! Eða kannski ekki vondann en ekki góðann! Eins og t.d. Soðið grasker í vatni og vatnið verður  sætt eins og þú sért búin að sjóða sykur og vatn saman og það var súpa og þetta er víst voðalega flottur matur þar sem hún býr. En ég gæti alldrei vanist svona mat!
Svo á sunnudaginn fórum við til Bremerhaven á Ausswanderung safn, semsagt safn sem segir frá því í gamla daga þegar fjölskyldurnar þurftu að aðskiljast vegna þess að annaðhvort maðurinn eða konann á heimilnu þurfti að yfirgefa þau til að geta unnið eitthvað og aflað pening fyrir fjölskylduna. Ótrúlega raunverulegt og það var bara eins og þú værir á þessu skipi, þetta var kosið besta safn í evrópu árið 2007 svo ekki skrítið að manni hafi fundist það flott.
Og eftir það var farið í dýragarð einn minnsti dýragarður  sem ég hef farið í sirka 15 dýr! Og helmingurinn selir! En þetta var mjög fínt ágætis dagur.
Svo er nottlega bara skóli á hverjum virkum degi eins og vanalega og hann gengur sona lala bara :) þýskan er öll að koma. En seinasti dagurinn af skólanum er á föstudaginn, en ég ætla mér að fara í annað þýskunám sem held ég byrjar í október þannig að þetta komi nú fyrr og verðir auðveldara að skilja.
Í gær fórum við með bekknum að skoða Jade wesser port, það er semsagt verið að byggja þvílíkt stóra bryggju hérna í willhelmshaven fyrir fluttningaskip og alla aðstöðu til þess og þar er einskonar safn sem segir mann hvað verður gert og solleiðis þar, ferðinn byrjaði mjög skemmtilega þar sem við fórum með s trætó þangað og hópurinn gleymdi að ýta á stop takkann svo strætóinn keyrði bara til baka og við þurftum að labba til baka aftur :) ágætis hreyfing þar á ferð.
Jæja held þetta sé orðið nógu langt! í bili allavega :)
Heyrumst
Hafdís
Þætti mjög vænt um ef fólk væri duglegra að kommenta :)

Sælir!

16. ágúst 2009 klukkan 17:53
Blogg Blogg
Það er alltof mikið búið að gerast  seinustu daga er ekki viss hvar ég á að byrja en þýskan er öll að koma og skólinn gengur fínt fyrir sig og nú ætla ég bara að hætta þessari ensku og tala bara þýsku!. En ég fór til annars kennara í seinustu viku og hann tók uppá því að kalla mig BJÖRK! Af því það er eina manneskjan sem hann þekkir frá íslandi!. Ég var ekki sátt en honum finnst þetta voða fyndið.
Svo á seinustu helgi fórum við í Heidepark! Sem er skemmtigarður! Er búin að henda inn myndum á facebook ef ykkur langar að kíkja. En já það var rosa gaman natalia vildi ekki fara í nein af þessum stóru tækjum svo ég fór bara með tural og jamal strákar frá azerbadjan, og mér leiddist þetta alls ekki. 
Já um helgina kom systir hans Koen í heimsókn og ég eldaði fyrir þau fiskisúpu sem heppnaðist svona líka rosa vel, þau vilja að ég eldi alltaf fiskisúpu þegar þau fá gesti í heimsókn. En já í Gær þá fór ég með bekknum að labba útá eyju sem heitir Baltrum, semsagt þú labbar yfir í viðbjóðslegri drullu og ef þú stendur kyrr þá bara sekkuru oní og þarft að labba allan tímann þetta tekur um 2 tíma og þetta er eitthvað sem ég geri ALLDREI AFTUR!  En já þegar þú ert komin yfir þá er sjórinn byrjaður að koma aftur svo það er ekki hægt að labba til baka svo þú ferð með skipi, en  við skoðuðum eyjunna þetta er sona 500 manna bær mjög krúttilegur engir bílar bara hjól og hestavagnar! Frekar fyndið en mjög hljóðlátt og þægilegt. En já ég vorkendi hestunum SVOO mikið að þurfa ða bera allt þetta fólk og töskur! Litlu greyin en svona er þetta!. Já við fórum þar á ströndina og fengum okkur að borða. Og þar sá ég kite surfing! Held það sé skrifað solleiðis og mig langar ýkt að prufa þetta! En þetta er víst stórhættulegt. En já svo var ég stunginn af vespu í þessari ferð! Ekki gott og mig svíður og klæjar alltof mikið.
Í morgun fór ég svo í brunch til Catheline sem er nemandi í skólanum og er að fara með okkur í allar ferðirnar sem við förum í hjá skólanum og solleiðis. En já semsagt við elduðum allar rétt úr hverju landi fyrir sig og við átum gjörsamlega yfir okkur! Allt svo gott og of mikið af öllu! En þetta var mjög gaman og spennandi. Eftir það tókum við smá rölt á ströndina ég var með hjólið með mér og það endaði með því að vera stoppuð af lögguni þar sem við natalia ætluðum að vera voða fyndnar að vera tvær á hjólinu og þá kom löggan! Fólk er víst að fá svaka sektir fyrir svonalagað hérna þú þarft t.d. að borga 30 evrur fyrir að tala í símann þegar þú hjólar, það eru um 7000 íslenskar krónur. En Við blikkuðum hann bara og sögðumst aldrei ætla að gera þetta aftur, voða sætur dúddi. Svo settumst við bara á veitingastað og fengum okkur sitthvorn kokteilinn og fórum svo bara heim.
Svona er lífið mitt búið að vera seinustu vikuna ég er reyndar búin að fara að versla doldið og sonna. Það verður nú að fylgja með! Svo er ég eiginlega bara heima með krökkunum þann tíma sem ég er ekki í prógrammi!
Ætla ekki að hafa þetta lengar í bili.
Sjáumst!
Hafdís Dröfn!

:)

08. ágúst 2009 klukkan 10:38
Þá er maður búin að vera hérna í næstum því viku á morgun, og ég er búin að vera í stanslausu prógrammi síðan ég kom, skólinn er alltaf með eitthvað að gera fyrir okkur og svo er ég búin að fara aðeins með fjölskyldunni.
Krakkarnir og Kunn komu heim á miðvikudaginn og það voru þvílíkir fagnaðarfundir og þvílík læti að skoða húsið og opna pakka og sjá herbergið sitt, en mér lýst bara rosa vel á krakkana þau eru allgjörar dúllur og rosa kurteis.
En ég er búin að fá hjól og er farin að hjóla út um allt og held bara að ég rati allveg hellings, ég er búin að fara 2svar á ströndina  fyrst með familíunni og svo fór ég með Nataliu og fleiri krökkum úr skólanum í gær.
Á miðvikudaginn fór ég að borða spagettí með krökkunum úr skólanum á einhverjum stað hérna í willhelmshaven, frekar fyndið en samt bara gaman að spjalla og ossoleiðis.
En skólinn er ekkert að ganga sem best, þar sem ég skil voðalega lítið í þýsku en  er farin að skilja orð og orð núna, en get einganvegið hugsað mér að tala hana. En það hlýtur að koma. Fyrr eða síðar.
En já í gærkveldi fór ég heim til Nataliu sem er semsagt stelpa hérna frá spáni við erum í sama kúrs í skólanum og erum orðnar ágætis vinkonur, en já þar komu fleiri krakkar úr skólanum og við vorum bara að spjalla og ég fór svo heim frekar snemma.
Á morgun er ég að fara í Heidepark,skemtigarð með skólanum það tekur reyndar allveg 2 og hálfan tíma að keyra þangað en ég held maður hafi ekkert annað að gera hérna.
Ætla ekki að hafa þetta lengra núna.
Auf bald :)
Hafdís Dröfn.

Hallú :)

05. ágúst 2009 klukkan 14:24
Jæja þá er ég komin út eftir verulega mikið stress seinustu daga!
Semsagt ferðin byrjaði á keflarvíkurflugvelli og ég var komin til þýskalands kl 6 að þýskum tíma og ég náði svo fljótlega kontakti við fólkið mitt hérna úti, það var ekki eins vandræðalegt og ég hélt að hita Inge hún semsagt náði í mig upp á flugvöll, en hún kunni ekki leiðina hingað til willhelmshaven og við þurftum að hjálpast að á landakorti og tjellan var bara nokkuð seig, En við komumst til willhelmshaven og ákváðum að kíkja á húsið fyrst ég bjóst bara við litlu og krúttilegu húsi! En neinei þetta er huges stórt hús, ég er með sérherbergi og stórt baðherbergi útaf fyrir mig. Gæti  ekki  verið þægilegra. En já svo erum við á leiðinni út að fá okkur eitthvað að borða og þá skellist hurðin og inge fattaði að lyklarnir væru inní húsinu enþá og aukalyklarnir í Belgíu! En við fengum nokkra lyklakalla til að koma og einn þeirra náði að opna fyrir okkur. Fyrsti dagurinn í skólanum var á mánudaginn og hann var frekar óþægilegur, semsagt ég mætti og sá ekkert nema kínverja en svo sest stelpa hjá mér frá spáni og heitir natalia og hún er í svipuðum sporum og ég kann ekkert og við spjölluðum aðeins saman. En við vorum látin taka próf á þýsku og ég bullaði allt prófið og skildi helminginn eftir, frekar leiðinlegt en ég kann bara ekkert í þýsku.
Er búin að fara núna í skólann í 2 daga og það verður alltaf betra og betra en það er bara hlegið af mér þegar ég geri eitthvað vitlaust en það venst.
Krakkarnir og kallinn komu heim í dag og það voru enginn smá læti, rosa gaman að koma í nýtt hús og fá fullt af pökkum :). Það er frekar vandræðalegt að vera hérna núna afþví þau eru náttúrulega ekki vön því að hafa aðra manneskju inná sér og ég ekki vön að vera hjá fólki sem ég skil ekki neitt :) en þetta verður öruglega betra.
Ég er að fara að hitta Natalie á eftir niðrí bæ og svo erum við að fara saman með krökkum úr skólanum að fá okkur að borða. Ég þarf að hjóla allt núna þar sem þau eru búin að kaupa fyrir mig hjól, sjáum bara hvernig tekst til að rata.
Bæjó
Hafdís

Sælnú!

01. ágúst 2009 klukkan 00:53
Jæja fólks!
þar sem ég er nú að fara út til þýskalands þá ætla ég að reyna að halda uppi smá bloggi svo þið getið nú aðeins fylgst með.
Blogga um leið og ég get :)

Hafdís Dröfn